Home
Velkomin á www.strandveidi.is
Nýjungar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Stjórnandi   
Þriðjudagur, 04. maí 2010 21:24

Í dag hefur kortið yfir strandveiðistaði verið skoðað yfir 5800 sinnum. Þetta er ótrúlegur fjöldi miðað við stuttan tíma sem kortið hefur verið  í loftinu. Frábært að sjá að áhuginn sé svona mikill.

En að sama skapi þá er hálf súrt að hér um bil enginn hafi getað séð af nýjum veiðistöðum til að skrá á það!

Ef þið vitið um góðan stað þá endilega skráið hann á kortið eða sendið mér upplýsingar um hann.

 

 


Kæru veiðimenn!

Ég hvet ykkur eindregið til að skrá ykkur á spjallið og taka þátt í að afla upplýsingum um strandstangaveiði. Augljóst er að ekki er mikil reynsla fyrir þessu sporti hér á Íslandi og því væri algjör snilld fyrir okkur og þá sem hafa áhuga á að prófa þetta sport ef einhversstaðar eru til upplýsingar á íslensku fyrir íslenskar aðstæður.

Ef þið hafið einhverjar sérstakar spurningar þá er kjörið að búa til sérstakann þráð á spjallinu sem fjallar um ykkar hugðarefni!

 

 


 

Nú er búið að hafa samband við bæði Snæfellsbæ og Akranes og bíð ég svara frá þeim. Það er vonandi að þeir sjái tekjumöguleika fyrir sveitarfélagið sem felst í strandstangaveiði.

Fyrir áhugasama þá snýst þessi heimasíða um að gera upplýsingar um strandstangaveiði aðgengilega fyrir hvern sem áhuga hefur.

Í hnotskurn:

Markmið?

Markmið síðunnar er að safna saman áhugaverðum strandstangaveiðistöðum um Ísland og merkja þá á kort.

Afhverju?

Því þessar upplýsingar virðast ekki liggja á lausu sem er synd þar sem miklir möguleikar eru fyrir hendi til að nýta þessar upplýsingar.

Er þörf á þessu?

Á leit minni á vefnum af upplýsingum um strandstangaveiði á Íslandi hef ég mjög lítið fundið en þó mikinn áhuga og þá ekki síst frá bæjarfélögum vítt og breytt um landið sem sjá möguleika á ferðaþjónustu í kringum þetta tiltölulega óþekkta sport á Íslandi. En samkvæmt upplýsingum frá þeim fundum sem haldnir hafa verið hjá ykkur og Keflavík má sjá að ferðaþjónustu möguleikarnir eru mjög miklir þar sem fjöldi frístundastrandstangaveiðimanna í heiminum eru taldir vera yfir 65 milljónir, sem eru margfalt fleiri en stunda frístundaveiðar á lax og silung í ám og vötnum.

Auk þess eru Íslendingar að vakna til lífsins um möguleikanna sem eru fyrir hendi í þessum veiðiskap. Til dæmis þú kæri lesandi!

Tækifæri?

Já það liggja tækifæri í þessu og þá sérstaklega til að auka tekjustofn bæjarfélaga í gegnum aukna ferðaþjónustu, og oft utan hefðbundins ferðatímabils. Ef upplýsingar eru aðgengilegar þá er líklegt að einhver nýti sér þær með tilheyrandi ferðalagi og hugsanlega gistingu og innkaupum í viðkomandi bæjarfélagi.

Vandamál?

Vandamálið sem mig langar að leysa er að alltaf virðist maður koma að sömu lokuðu dyrunum, hvergi eru til upplýsingar um veiðistaði, veiðiaðferðir né hvað veiðist á hverjum stað.

Og hvað??

Til að byrja með er ætlun mín að safna saman veiðistöðum á Google Maps: Veiðikortið. Auk þessa langar mig að safna saman upplýsingum um veiðiaðferðir, það eru til margar veiðiaðferðir enda mikið af mögulegum fiskitegundum til að veiða.
Seinni tíma markmið er að gera enska útgáfu af síðunni til að gera upplýsingarnar einnig aðgengilegar erlendum aðilum.

En ef enginn áhugi er fyrir hendi?

Í öllu falli þá munu þessar upplýsingar vera aðgengilegar hverjum sem áhuga hefur.

Hjálparhendur?

Það væri frábært ef þið sæjuð ykkur fært að aðstoða mig í þessu og merkja inná kortið þá staði sem þið þekkið til og einhverjar upplýsingar um þá í leiðinni. Einnig væri gaman að fá pistla um veiðiaðferðir sem þið notið og lýsingu á hvernig búnaðurinn er settur upp.

Hvað græði ég á þessu?

Ef vel tekst til og upplýsingar um veiðistaði skila sér þá eykst áhuginn á sportinu og nýjir veiðistaðir verða kannaðir og merktir á kortið.
Því fleiri veiðistaði sem við fáum á kortið því fjölbreyttari getur veiðin þín orðið sem og tegundaflóran!

Lokaorð?

Látið boðskapinn berast!
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 30. júní 2010 15:57
 

Skoðanakönnun

Hvað viljum við sjá á þessari síðu?
 

Innskráðir

Það er 1 gestur á síðunni núna
Tölvuþjónustan Geymir bíður afbragðs vefhýsingar á frábæru verði! Við mælum klárlega með þeim!